Það er hægt að skipta um trúarbrögð í landinu
Ræða í Stúdentafélagi Reykjavíkur þann 23. janúar 2025
Kæru vinir, nú líður að setningu Alþingis Íslendinga sem fer fram þriðjudaginn 4. febrúar og fyrir því erum við í þingflokki Miðflokksins að sjálfsögðu afar spennt. Að undanförnu höfum við verið að undirbúa okkur fyrir þingstörfin og svo við hitt og þetta annað, sem fylgir starfinu.
Ég flutti erindi á vegum Stúdentafélags Reykjavíkur þann 23. janúar, þar sem ég fjallaði um það hvernig stjórnmálin hegða sér í sífellt auknum mæli eins og trúarbrögð, bæði hér á landi og erlendis.
Með öðrum orðum: Hvað annað en hröð trúarleg sinnaskipti hafa leitt til þeirra grundvallarbreytinga sem hafa orðið á ráðandi stjórnmálahugsun á Íslandi á undanförnum árum, hvort sem er í sambandi við viðhorf til þjóðmenningarinnar, tungumálsins eða kynjamála?
Vel mælt. Hvernig gengur maður í stúdentafélagið?