Samkeppni er sannarlega af hinu góða, hún er mögulega það eina sem getur bjargað okkur…
Ég veit að margir tortryggja alla notkun hugtaksins samkeppni, væntanlega í ljósi þess að helstu yfirlýstu talsmenn frjálsrar samkeppni á Íslandi eru af einhverjum ástæðum ekki sérstaklega viðkvæmir fyrir því þegar það opinberast endrum og eins við sérstaka athugun að íslensk fyrirtæki starfi í raun réttri ekki alltaf samkvæmt lögmálum frjálsrar samkeppni.




