Elsku lesendur mínir, áskrifendur nýir og gamlir, dyggir fylgjendur, hatursmenn, nú er rúmt ár liðið frá því að ritstjóraverkefninu var ýtt úr vör og þetta hefur verið ævintýri lífs míns. Ég hef aldrei skemmt mér eins vel í fjölmiðlastarfi. Nú verða líklega breytingar á mínum högum þar sem ég stefni á þátttöku í stjórnmálum fyrir Miðflokkinn. Undir þeim formerkjum mun ritstjórnarefni mitt lúta öðrum lögmálum og ég tel þá ekki rétt að birta kostaðar auglýsingar, taka gjald af lesendum mínum né loka efni mínu fyrir afmörkuðum hópi. Ég mun því endurgreiða áskrifendum áskriftargjöld sem hafa verið greidd fram í tímann. Ég endurtek að ég get varla lýst þakklæti mínu fyrir stuðninginn allan þennan viðburðaríka tíma og minni á að ég hef langt í frá sagt mitt síðasta orð á þessum vettvangi. Guð blessi ykkur.
Discussion about this post
No posts